Ennimánaskin 4

Jan 19, 2010


Sýningarstjóri Ennismánaskins að þessu sinni er Tinna Grétarsdóttir mannfræðingur.
Myndin sem Tinna deilir með gestum Ennismánaskins heiter Sans Soleil frá árinu 1983 eftir hinn franska Chris Marker, einn merkasta heimildarmyndaleikstjóra síðustu aldar. Sans Soleil er eitt þekktasta verk Marker og að auki stórskemmtileg tilraun hans með heimildarmyndarformið þannig að myndina er einnig hægt að kalla huglæga ferðasögu, heimspekiessíu eða nokkurs konar mannfræðistúdíu. Hvað sem flokkuninni líður er Sans Soleil gullfallegt ferðalag bæði í tíma og rúmi sem varpar áhorfandanum á milli Japan, Guinea-Bissau, Íslands og San Fransisco. Myndin er þó öðru fremur stúdía og vangavelta í því hvernig maðurinn byggir og endurskapar minni sitt og hvernig utanaðkomandi þættir hafa áhrif á minnið.



Russian Ark at Bakkus dec. 16th 10pm

Dec 16, 2009


Sýningastjóri Ennimánaskins að þessu sinni er Ragnheiður Kristín Pálsdóttir, sérleg áhugakona um rússneskar kvikmyndir. Ragnheiður bjó um tíma í Rússlandi og stúderaði rússneska sögu og tungumál. Myndin sem hún mun deila með gestum heitir Russian Ark frá árinu 2002 eftir leikstjórann Alexander Sokurov. Myndin er skotin í einni töku í vetrarhöllinni í Pétursborg sem hýsir Hermitage listasafnið. Áhorfandanum er boðið í ferðalag um safnið en um leið gegnum sögu Rússlands 300 ár aftur í tímann þar sem Katrín mikla, Pétur mikli og skáldið Púskin koma við sögu meðal annarra. Í myndinni eru tveir sögumenn sem eiga samtal; Rússi og franskur aristókrati að nafni Marquis. Marquis heimsótti Rússland árið 1893 og skrifaði um ferðalagið mikla bók. Í gegnum myndina, söguna og safnið eiga þeir samtal um Rússland ofl.

Myndin er mikið augnakonfekt og merkileg fyrir það að vera tekin í einu skoti en hafa samt mörg lög af merkingu. Hún er fallega tekin og andrúmloftið sérstakt. Myndin fékk mjög góða dóma og vakti athygli í Evrópu en náði ekki í gegn í Hollywood.



The Berlin Launch

Dec 5, 2009

Thanks to all who came to our launch of issue nr.3 at WMF last night. It was a blast.


On the screens from left to right: Inga Birgisdóttir (nr.1 - Fish), Hjaltalín Live Performance (nr.2 - House) and Assume Vivid Astro Focus (nr.3 - Reflections).